22.08.2006 11:43:05 / K. Louise
Já, það er svo gaman að því
hvað við erum dugleg að bloggar á þessari síðu!
Skamm krakkar, skamm!
En annars...Hvað er að frétta af okkur? Ég ætla
að koma með smá uppfærslu um líf okkar en bendio jafnframt á að ég
er ekki endilega með alveg nýjustu upplýsingar!
Axel Ingi: Hann er
að vinna á Bautanum og svo er hann að spila í tríói kenndu við vatn
ásamt Unni Birnu og Eyþóri..óhætt að segja að hann sé þriðja hjólið
þar..neinei..
Ingi Steinn: Á fullu í
flugnáminu (maður hefur heyrt að drengurinn sé að brillera) ásmat
því sem hann vinnur í Kristjáns Bakaríi.
Kristjana Louise: Vinnu
minni fer að ljúka á elliheimilinu en þá tekur sláturhúsið við.
Annars á ég mér ekkert líf.. Sauma bara, les og horfi á sjónvarpið.
Frábært..
Pálína Dagný: Vinnur á
fullu í KB Banka á Siglufirði.Eitthvað hefur maður heyrt að hún
tolli illa heima hjá sér um helgar..
Steinar: Hann er fluttur
til Reykjavíkur. Hvernig lifum við hin vetrurinn af án hans...
Valur: Hann er búinn að
vera að vinna á Amtsbókasafninu og hann er líka orðinn meðlimur
hljómsveitarinnar Tortímandans og þeir eru víst frábærir. Hef ekki
orðið það heppin að heyra þá spila ennþá.
Þetta er það sem ég man eftir. Þið (KHK) verðið
þá bara að skrifa í "athugasemdir" ef það er eitthvað sem ég
gleymdi.
K. Louise